Frekir kallar (2021)

Kaktus, Akureyri, 24. – 25. september 2021

Fyrir nokkrum árum ákvað Sigurður að hætta að skrifa statusa á Facebook til að fá útrás fyrir gremju sína yfir því sem var að gerast í samfélaginu. Þannig losnaði hann við komment sem vöktu þá enn meiri gremju og streitu. Fyrir einu ári eða svo þurfti hann að finna aðra útrás fyrir pirring og gremju og fór þá að mála stórar portrettmyndir í stað þess að ranta á samfélagsmiðlum. Málverkin eru allskonar; sum fljótfærnisleg, önnur agressíf en sum fínlega máluð, alveg eins og statusar á samfélagsmiðlum verða gjarnan. Á sýningunni eru tíu statusar ef svo má segja, tíu málverk sem öll veittu Sigurði útrás. Verkin eru öll til sölu. Væntanlegir kaupendur ákveða verð en skuldbinda sig til að leggja upphæðina inn hjá góðgerðarsamtökum að eigin vali. Þannig nýtur samfélagið góðs af ergelsi listamannsins